Staldraðu við og taktu stjórn á eigin hugsunum og líkama.
Vinnustaða Yoga og Heilsukynning.
Vinnustaða yoga eru einfaldar og áhrifaríkar æfingar sem innihalda líkamsstyrkingu, líkams vitund og öndunaræfingar.
Það er mikilvægt að hlúa að okkur á hverjum degi og rannsóknir hafa sýnt að stunda jóga reglulega, skilar sér í betri líðan, meiri afköstum og aukinni ánægju í starfi og leik.
Ég fer yfir af hverju Öndun-Taugakerfið-0rkustjórnun og Hormón heilans eru mikilvæg atriði þegar það kemur að heilsu. Ég enda síðan hverja kynningu á öndunaræfingum og jóga.
Ef þú vilt fá jóga og fyrirlestur í fyrirtækið
hafðu samband og við finnum tíma.
Pop -Up Yoga
Við eigum það til að gefa okkur ekki nægan tíma til að huga að okkur sjálfum bæði líkama og sál. Pop-Up Yoga er fullkominn 90 mín tími til að ná stjórn á huganum með öndun og styrkja líkamann með jógastöðum. Síðustu 30 mínúturnar fara síðan í djúpar teygjur og djúpslökun.
Sjá nánar um Pop-Up Yoga .
Þóra Rós
Ég stofnaði 101 yoga með þeirri ástríðu hjálpa fólki að finna drifkraftinn og styrkja í leiðinni líkama og sál með yoga, hreyfingu og öndunaræfingum.
Ég er lærður jógakennari og dansari með yfir 15 ára reynslu í að kenna dans, setja upp danssýningar og viðburði, en jóga hefur átt hug minn allan síðastliðin 7 ár. Dansþráin hefur komið mér víða og leyft mér að ferðast um heiminn og ég útskrifaðist sem listdansari frá Performing Art School í Puebla, Mexíkó þar sem ég bjó og starfaði í 4 ár.
Fyrir mér snýst jóga um að vera meðvituð um öndunina, hugsanirnar og líkamann. Að geta valið hvernig ég ætla að eyða orkunni minni yfir daginn og finna fyrir vellíðunar tilfinningu eftir hvern jógatíma.