Drífandi mæður

Ég hef alltaf farið mínar eigin leiðir í lífinu og ég hef lært það að trúa og treysta á sjálfan mig skiptir öllu máli. Ég hef oft gert mistök og þurft að byrja upp á nýtt. En þessir hlutir hafa eingöngu gert mig að sterkari einstaklingi.

Sem 3ja barna móðir hef ég upplifað stundir þar sem ég hafði ekki nógu mikla trú á mér, en vegna þrautseigju og í gegnum jóga hefur mér tekist að ná markmiðunum mínum.

Það er mjög eðlilegt að missa yfirsýnina, missa trúna á okkur sjálfar og sleppa tökum á draumunum okkar þegar móðurhlutverkið tekur yfir. Þess vegna ákvað ég að fara af stað með námskeið fyrir Drífandi Mæður.

Námskeiðið er samblanda af yoga æfingum, yoga speki, hugleiðslu, öndunaræfingum, tímastjórnun og hreyfingu.

Þetta námskeið hentar mæðrum sem óska eftir

  • Sköpun

  • Styrk

  • Jafnvægi

  • Hugrekki

  • Drifkraft

Ef þú vilt vera með á næsta námskeiði fyrir Drífandi mæður skráðu þig hér.

Þú getur einnig verið með í hópnum á facebook þar sem Drífandi mæður deila sínum áhugamálum og speki.